| Sunnudagur, 8.janúar 2012 |
|
Gleðilegt nýtt ár!
Í gær hófst nýtt námskeið og það var alveg frabært að sjá alla litlu sundgarpana mína, bæði gamla og nýja. Fyrsti tíminn hjá þriðjudagshópunum er næstkomandi þriðjudag 10.janúar.
Það er orðið fullt í byrjendahópana og framhald 1 en ég á örfá laus pláss í framhald 2 kl.17:45 og nokkur laus pláss í nýja Fjörkálfahópinn kl.16:10.
Næstu námskeið hefjast í mars og skráning er hafin. Sjá nánar undir næstu námskeið. Skráning fer fram í síma 615-2121 eða í tölvupósti erla@ungbarnasunderlu.is
Kveðja Erla
|
|
|
| Miðvikudagur, 14.desember 2011 |
|
Komið þið sæl
Nú er síðasta námskeiði ársins lokið og vil ég nota tækifærið til að þakka öllum fyrir frábærar sundstundir á árinu sem er að líða. Sjáumst hress og kát á nýju ári.
Mig langar einnig að benda þeim sem voru að ljúka námskeiði í vikunni og öðrum áhugasömum á að myndirnar eru komnar inn á Facebook.
Næstu námskeið hefjast 7.og 10.janúar og enn eru nokkur laus pláss bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Sjá nánar undir næstu námskeið. Skráning fer fram í síma 615-2121 eða í tölvupósti erla@ungbarnasunderlu.is
Jólakveðja Erla
|
|
|
| Mánudagur, 21.nóvember 2011 |
|
Hæ hæ allir,
Loksins er heimasíðan komin aftur í lag og búið að uppfæra hópa og námskeið :) Nánari upplýsingar má finna undir Næstu námskeið.
Skráning í síma 615-2121 eða í tölvupósti erla@ungbarnasunderlu.is
|
|
|
| Laugardagur, 1.október 2011 |
|
Sæl verið þið,
Næsta námskeið hefst þriðjudaginn 18.og laugardaginn 22.október. Skráning gengur vel og er orðið fullt í marga hópanna en það eru nokkur laus pláss á þriðjudögum kl.19:15 fyrir byrjendur. Það er einnig hægt að skrá sig á biðlista í laugardagshópana ef einhver skyldi forfallast.
Sjá nánar hvenær er laust undir næstu námskeið hér til hægri.
Skráning í síma 615-2121 eða í tölvupósti erla@ungbarnasunderlu.is
|
|
|
| Fimmtudagur, 21.júlí 2011 |
|
Gleðilegt sumar öll sömul, Ungbarnasund Erlu er í sumarfríi til 16.ágúst. Hafið ekki áhyggjur þó að pósti sé ekki svarað alveg strax, ég fer yfir hann um leið og ég kem úr fríi.
Næsta námskeið hefst þriðjudaginn 16.ágúst og laugardaginn 20.ágúst. Enn eru nokkur laus pláss, skráning í síma 615-2121 eða erla@ungbarnasunderlu.is.
Mig langar einnig að benda ykkur á skemmtilegu vefverslunina okkar Stundir.is! Þar fást meðal annars sundleikföng, sundfatnaður og sundhettur fyrir börnin.
Góðar sundstundir, kveðja Erla
|
|
|
| Fimmtudagur, 5. maí 2011 |
|
Myndirnar sem teknar voru á þriðjudaginn eru komnar inn á Facebook. Það verða einnig teknar myndir í kafi hjá öllum byrjendahópum á laugardaginn.
Næsta námskeið hefst strax á sunnudaginn. Það er orðið fullt á bæði sumarnámskeiðin, í maí og júní, en það lítið mál að skrá sig á biðlista eða skrá barnið á námskeið í ágúst.
Mig langar einnig að benda ykkur á skemmtilegu vefverslunina okkar Stundir.is! Þar fást meðal annars sundleikföng, sundfatnaður og sundhettur fyrir börnin.
Góðar stundir, Erla
|
|
|
| Fimmtudagur, 31. mars 2011 |
|
Sumarnámskeið 1 hefst sunnudaginn 8.maí og kennt verður á þriðjudögum og sunnudögum í 4 vikur. Nú þegar er orðið fullt í báða byrjendahópana en hægt er að skrá sig á biðlista ef einhver skyldi forfallast. Enn eru nokkur laus pláss í framhaldshópana í maí. Fjörkálfarnir fara í sumarfrí í maí-júlí og byrja aftur í ágúst. Skráning hafin.
Sumarnámskeið 2 verður haldið í júní (4 vikur). Ekki eru komnar nákvæmar dag-eða tímasetningar en kennt verður tvo virka daga upp úr hádegi. Skráning er hafin.
Kíkið einnig á vefverslunina okkar Stundir.is!. Þar má finna ýmislegt fyrir litla sundgarpa og fleira fyrir foreldra þeirra.
Góðar sundstundir, Erla
|
|
|
| Miðvikudagur, 8. desember 2010 |
|
Næstu námskeið hefjast í byrjun janúar og nú eru aðeins örfá laus pláss. Fullt er í alla byrjendahópa og fjörkálfahóp en hægt er að skrá sig á biðlista. Enn eru örfá laus pláss í framhald 1 og framhald 2. Skráning á námskeið í mars er einnig hafin á erla@ungbarnasunderlu.is og 615-2121.
Mig langar einnig að benda ykkur á skemmtilegu vefverslunina okkar Stundir.is! Ýmis tilboð fram að jólum.
Góðar stundir, Erla
|
|
|
| Mánudagur, 18. október 2010 |
|
Í síðustu viku lauk haustnámskeiðum. Áhugasamir geta skoðað myndir á Facebook undir Ungbarnasund Erlu og um leið tekið þátt í skemmtilegum leik sem er í gangi þar. Vinningar verða dregnir út í lok október.
Í þessari viku er frí hjá öllum og ég hvet ykkur eindregið til að nýta ykkur heita og góða innilaugina í Suðurbæjarlaug í vikunni og um helgina. Hún verður opin öllum á laugardag og heit og góð eins og vanalega þó að það verði engin kennsla.
Nýtt námskeið hefst svo þriðjduaginn 26.og laugardaginn 30.október. Fullt er í alla hópa en ennþá er hægt að skrá sig á biðlista og á næsta námskeið sem hefst í byrjun janúar.
Vantar þig sundföt á barnið, sundhettu eða leikföng í bað eða sund? Kíkið endilega á skemmtilegu vefverslunina okkar Stundir.is!
Góðar stundir, Erla
|
|
|
| Miðvikudagur, 1. september 2010 |
|
Það er gaman að sjá hversu dugleg við Íslendingar erum að fara með börnin okkar í sund. Nú er orðið fullt fyrir byrjendur og fjörkálfa á næsta námskeið sem hefst í lok október en hægt er að skrá barnið á biðlista. Einnig er hafin skráning á námskeið sem hefst í byrjun janúar.
Enn eru laus pláss fyrir framhald 1 og framhald 2 í október, best er að skrá barnið með því að hringja í mig eða senda tölvupóst á erla@ungbarnasunderlu.is.
Frá og með deginum í dag, 1.september hækkar námskeiðsgjaldið í 9.900 krónur.
Kveðja Erla
|
|
|
| Fimmtudagur, 5. ágúst 2010 |
|
Nú er orðið fullt í alla hópa á haustnámskeiði (ágúst-október) en hægt er að skrá sig á biðlista.
Einnig er hafin skráning á fyrsta vetrarnámskeiðið sem mun hefjast í lok október og verður á svipuðum tímum og haustnámskeiðið.
Skráning í síma 615-2121 eða á erla@ungbarnasunderlu.is
Kveðja Erla
|
|
|
| Þriðjudagur, 13. júlí 2010 |
|
Nú er sumarfrí hjá Ungbarnasundi Erlu en næstu námskeið hefjast laugardaginn 21. og þriðjudaginn 24.ágúst.
Nánari upplýsingar má finna undir Næstu námskeið hér vinstra megin og skráning fer fram í síma 615-2121 eða með tölvupósti á erla@ungbarnasunderlu.is
Gleðilegt sundsumar!
Kveðja Erla
|
|
|
| Laugardagur, 22. maí 2010 |
|
Þann 15.júní hefst 4 vikna sumarnámskeið. Kennt verður tvisvar í viku á þriðjudögum og föstudögum.Þrír hópar verða í boði
Hópur 1, kl.12:00-12:40 (fullt)
Hópur 2, kl.12:50-13:30
Hópur 3, kl.13:40-14:20
Einnig er hægt að skrá sig á biðlista á námskeiðið sem hófst 18.og 22.maí.
Kveðja Erla
|
|
|
| Þriðjudagur, 13. april 2010 |
|
Nú er orðið fullt í alla byrjendahópa í maí en ef eftirspurn verður næg mun ég bæta við 4 vikna námskeiði sem myndi hefjast 14.júní (hver hópur yrði tvisvar í viku á virkum dögum eftir hádegi).
Einnig er hægt að skrá sig á biðlista á námskeiðið sem hefst 18.og 22.maí.
Kveðja Erla
|
|
|
| miðvikudagur, 3. mars 2010 |
|
Skráning er hafin á sumarnámskeið sem hefst 18.maí. Til þess að anna eftirspurn verður námskeiðið 8 vikur en ekki 4 eins og ég var búin að auglýsa. Kennt verður einu sinni í viku á þriðjudögum eða laugardögum.Skráning í síma 615-2121 eða erla@ungbarnasunderlu.is.
Mig langar einnig að benda þeim sem voru í sundtímanum í gær og öðrum áhugasömum á að myndirnar eru komnar inn á Facebook.
Kveðja Erla
|
|
|
| fimmtudagur, 11. febrúar 2010 |
|
Skráning á næsta námskeið hefur gengið framar vonum og fullt er orðið í alla byrjendahópana. Þegar hafa nokkrir skráð sig á biðlista og ef eftirspurnin verður næg mun ég reyna að bæta við einum byrjendahóp.
Ég hvet þá sem hafa áhuga á að skrá sig á framhaldsnámskeið að hafa samband sem fyrst því oft komast færri að ein vilja. Skráning í síma 615-2121 eða erla@ungbarnasunderlu.is.
Kveðja Erla
|
|
|
| laugardagur, 6. febrúar 2010 |
|
Næsta námskeið hefst laugardaginn 13.og þriðjudaginn 16.mars. Nú eru aðeins örfá laus pláss fyrir byrjendur. Það er orðið fullt í laugardagshópana en hægt er að skrá sig á biðlista, örfá laus pláss á þriðjudögum kl.16:20 og 18:50.
Skráning á framhaldsnámskeið er einnig hafin í síma 615-2121 eða erla@ungbarnasunderlu.is.
Kveðja Erla
|
|
|
| föstudagur, 15. janúar 2010 |
|
Ný 8 vikna námskeið eru hafin. Fullt er í alla hópa nema Fjörkálfahópinn (2 ára börn). Áhugasamir gera skráð sig í síma 615-2121 eða á erla@ungbarnasunderlu.is.
Næstu námskeið hefjast í mars. Nánari tímasetningar hópa má sjá undir Næstu námskeið hér til vinstri.
Kveðja Erla
|
|
|
| föstudagur, 1. janúar 2010 |
|
Ungbarnasund Erlu óskar öllum sundgörpum gléðilegs nýs árs og þakkar margar skemmtilegar sundstundir á liðnum árum.
Nú styttist í að næsta námskeið hefjist en fyrstu tímarnir verða þriðjudaginn 12.og laugardaginn 16.janúar. Örfá laus pláss. Skráning á erla@ungbarnasunderlu.is eða í síma 615-2121.
Kveðja Erla
|
|
|
| þriðjudagur, 24. nóvember 2009 |
|
Nú eru komnar nákvæmar tímasetningar á næsta námskeið sem hefst 12.janúar. Skráning er í fullum gangi bæði í byjrenda- og framhaldshópa.
Kveðja Erla
|
|
|
| sunnudagur, 27. september 2009 |
|
Skráning á vetrarnámskeiðið er í fullum gangi og vegna mikillar aðsóknar hef ég bætt við hóp fyrir byrjendur á laugardögum kl.9. Það er orðið fullt í nokkra hópa en hægt er að skrá sig á biðlista. Enn eru nokkur laus pláss á þriðjudögum í Framhald 1 (5-8 mánaða) og Framhald 2 (8-15 mánaða).
Áhugasamir geta skráð sig í síma 615-2121 eða ungbarnasunderlu@simnet.is.
Kveðja Erla
|
|
|
| föstudagur, 4. september 2009 |
|
Næstu 8 vikna byrjenda- og framhaldsnámskeið hefjast upp úr miðjum október og þeim lýkur í desember. Skráning er hafin á þetta Vetrarnámskeið og einnig á Vetrarnámskeið II sem hefjast í byrjun janúar.
Skráning fer fram í síma 615-2121 eða ungbarnasunderlu@simnet.is.
Kveðja Erla
|
|
|
| föstudagur, 14. ágúst 2009 |
|
Á morgun laugardag er síðasti tíminn á sumarnámskeiðinu. Þá verða teknar köfunarmyndir af þeim sem vilja. Myndirnar er svo settar í myndasafnið hér á síðunni og einnig undir Ungbarnasund Erlu á Facebook. Þar getið þið náð í þær ykkur að kostnaðarlausu.
Strax á þriðjudaginn (18.ágúst) og laugardaginn (22.ágúst) hefjast svo ný 8 vikna námskeið. Enn eru nokkur laus pláss. Skráning í síma 615-2121 eða ungbarnasunderlu@simnet.is.
Kveðja Erla
|
|
|
| fimmtudagur, 30. júlí 2009 |
|
Ég minni ykkur sem eruð á sumarnámskeiðinu á að það er frí á laugardaginn 1.ágúst vegna Verslunarmannahelgarinnar. Suðurbæjarlaug er engu að síður opin og þeir sem eru í bænum geta endilega nýtt sér það að skella sér í heita laugina. Góða helgi og við sjáumst svo öll hress á þriðjudaginn.
Nú eru komnar inn á síðuna nákvæmar tímasetningar á öllum hópum á næsta námskeiði, bæði hér til hægri og einnig undir næstu námskeið. Enn eru laus pláss í flesta hópa. Skráning í síma 615-2121 eða ungbarnasunderlu@simnet.is. Verið ófeimin við að hringja um helgina, ég tek símann með í ferðalagið.
Kveðja Erla
|
|
|
| þriðjudagur, 21. júlí 2009 |
|
Mig langar að benda að að skráning á næstu námskeið er í fullum gangi, bæði byrjenda- og framhaldsnámskeið. 8 vikna námskeið hefst 18.ágúst og annað í október. Skráning í síma 615-2121 eða ungbarnasunderlu@simnet.is
|
|
|
| fimmtudagur, 2. júlí 2009 |
|
Í ágúst hefst glænýtt námskeið hjá Ungbarnasundi Erlu, Framhald I og er það fyrir börn á aldrinum 5-8 mánaða sem lokið hafa byrjendanámskeiði í ungbarnasundi.
Í ágúst mun Ungbarnasund Erlu einnig loksins bjóða upp á námskeið fyrir eldri börn frá 20 mánaða aldri. Nánari upplýsingar koma á síðuna þegar nær dregur.
Vegna aukinnar eftirspurnar hef ég svo bætt við einum hóp fyrir byrjendur á næsta námskeið (18.júlí-15.ágúst). Hópurinn verður á laugardögum kl.12:15 og þriðjudögum kl.16:20. Enn eru nokkur laus pláss.
Áhugasamir geta skráð sig í síma 615-2121 eða á ungbarnasunderlu@simnet.is.
Kveðja Erla
|
|
|
| laugardagur, 30. maí 2009 |
|
Ungbarnasund Erlu verður í sumarfríi frá 3.júní- 17.júlí. Enn eru nokkur laus pláss fyrir byrjendur á næsta námskeið (Sumarnámskeið II) sem hefst 18.júlí eða um leið og Suðurbæjarlaug opnar aftur eftir endurbætur.
Myndirnar sem teknar voru í dag eru komnar á Facebook undir Ungbarnasund Erlu. Þær munu svo koma í myndasafnið hér til hliðar í næstu viku.
Kveðja Erla
|
|
|
| miðvikudagur, 20. maí 2009 |
|
Myndirnar sem teknar voru 5. og 9.maí eru komnar í myndasafnið hér til hliðar. Þær má einnig finna á Facebook undir Ungbarnasund Erlu.
Skráning á næstu námskeið er í fullum gangi, áhugasamir geta hringt í síma 615-2121 eða sent tövlupóst á ungbarnasunderlu@simnet.is.
Kveðja Erla
|
|
|
| mánudagur, 27. apríl 2009 |
|
Vegna mikillar aðsóknar ákvað ég að bæta við einum byrjendahóp á sumarnámskeiðið í maí og gat komið öllum að sem voru á biðlista. Biðlistinn er því ekki langur og enn er hægt að skrá sig á hann ef þið hafið áhuga.
Suðurbæjarlaug verður því miður lokuð frá 1.júní-10.júlí en ný námskeið hefjast hjá mér um leið og hún opnar aftur eða um miðjan júlí. Nú eru komnar tímasetningar á hópa á það námskeið (sjá næstu námskeið). Skráning í síma 615-2121.
Kveðja Erla
|
|
|
| miðvikudagur, 1. apríl 2009 |
|
Ungbarnasund Erlu er komið í smá páskafrí. Engin kennsla verður laugardaginn 4.apríl, þriðjudaginn 7.apríl og laugardaginn 11.apríl. Laugin verður opin almenningi og hituð eins og vanalega bæði á þriðjudögum og laugardögum og því um að gera að skella sér í sund með allri fjölskyldunni þó að kennarann vanti.
Nú er orðið fullt í báða byrjendahópana í maí en ennþá er hægt að skrá sig á biðlista.
Ég verð ekki í símasambandi næstu vikuna og því lang best að senda mér tölvupóst og ég mun svara við fyrsta tækifæri.
Hafið það gott í páskafríinu.
Kveðja Erla
|
|
|
| mánudagur, 22. mars 2009 |
|
Nú eru aðeins örfá laus pláss fyrir byrjendur á námskeiðið sem hefst í maí. Áhugasamir hafi samband í síma 615-2121. Þeir sem hafa áhuga á að koma á framhaldsnámskeið (8-14 mánaða) geta ennþá skráð sig. Það eru laus pláss í hóp 3.
Ég er einnig farin að skrá á námskeið sem hefst upp úr miðjum júlí, Það námskeið verður með sama fyrirkomulagi og maínámskeiðið, þ.e. 4 vikur og kennt tvisvar í viku, á þriðjudögum og laugardögum.
Hægt er að skoða myndir og lesa ýmsa fróðleiksmola á Facebook.
Kveðja Erla
|
|
|
| fimmtudagur, 12. mars 2009 |
|
Nú eru komnar nákvæmar dags- og tímasetningar á sumarnámskeiðið. Fyrsti tíminn verður sunnudaginn 10.maí en eftir það er kennt á þriðjudögum og laugardögum. Námskeiðið er 8 skipti og lýkur þriðjudaginn 2.júní.
Nánari tímasetningar á hópum má finna undir Næstu nánmskeið hér til vinstri.
Enn eru nokkur laus pláss. Skráning í síma 615-2121 eða 586-8608.
Kveðja Erla
|
|
|
| mánudagur, 9. mars 2009 |
|
Myndirnar eru væntanlegar í myndasafnið hér til vinstri innan skamms. Ég biðst afsökunar á því hvað það hefur tekið langan tíma að setja þær inn en þær verða komnar á netið á morgun þriðjudag. Þeir sem vilja myndirnar sínar í betri gæðum geta sent mér tölvupóst og ég sendi ykkur myndirnar.
Mig langar einnig að benda áhugasömum á það að það hefur losnað eitt pláss á byrjendanámskeiðið á laugardögum kl.11:30. Hringið í 615-2121 ef þið hafið áhuga.
Kveðja Erla
|
|
|
| laugardagur, 7. mars 2009 |
|
Í dag og á þriðjudag hefjast ný námskeið, í fyrsta tímanum hjá byrjendum hittumst við í andyri Suðurbæjarlaugar og förum saman inn að sundlaug. Þar höfum við stutt spjall og kynningu á aðstæðum. Að því loknu förum við svo saman ofan í laugina og kynnumst vatninu.
Hlakka til að sjá ykkur!
Kveðja Erla
|
|
|
| sunnudagur, 1. mars 2009 |
|
Nú er orðið fullt á námskeiðið sem hefst 7.og 10.mars en hægt er að skrá sig á biðlista í alla hópa.
Myndirnar sem teknar voru á laugardaginn (28.feb) munu koma í myndasafnið í lok vikunnar ásamt myndunum sem verða teknar á þriðjudaginn (3.mars). Þeir sem eru með Facebook geta séð myndirnar á Ungbarnasund Erlu. Ef þið viljið myndirnar af ykkar barni í betri gæðum þá getið þið sent mér tölvupóst og ég sendi ykkur ykkar mynd/myndir.
Kveðja Erla
|
|
|
| sunnudagur, 15. febrúar 2009 |
|
Nú eru aðeins örfá laus pláss á næsta byrjendanámskeið sem hefst í mars. Það eru laus pláss á þriðjudögum kl.18:10 og hægt er að skrá sig á biðlista í hina hópana. Skráning á sumarnámskeið sem hefst 12.maí er einnig hafin.
Kveðja Erla
|
|
|
| mánudagur, 19. janúar 2009 |
|
Næsta námskeið verður 7./10.mars - 5./9.maí. Páskafrí verður frá 4-13.apríl. Skráning er hafin í síma 615-2121 eða 586-8608.
Til gamans má geta að Ungbarnasund Erlu er með síðu á Facebook þar sem má finna nokkra fróðleiksmola um ungbarnasund og undirbúning fyrir námskeið.
|
|
|
| mánudagur, 22. desember 2008 |
|
Myndirnar sem teknar voru þriðjudaginn 16. og laugardaginn 22.desember eru nú allar komnar í myndasafnið hér til vinstri.
Ungbarnasund Erlu er nú komið í jólafrí til 10.janúar en þá hefst nýtt námskeið. Ég óska ykkur öllum gleðilegrar hátíðar og farsældar á nýju ári og þakka um leið margar skemmtilegar sundstundir.
Jólakveðja Erla
|
|
|
| laugardagur, 13. desember 2008 |
|
Nú er aðeins ein vika eftir af námskeiðinu og í síðasta tímanum verður myndataka af börnunum í kafi. Þið getið síðan nálgast myndirnar af ykkar barni í myndasafninu hér vinstra megin.
Nú eru aðeins öfrá laus pláss á næsta námskeið sem hefst 10.janúar.Áhugasamir hafi samband sem fyrst í síma 615-2121.
Kveðja Erla
|
|
|
| miðvikudagur, 26. nóvember 2008 |
|
Skráning á næsta námskeið sem hefst 10.janúar er í fullum gangi. Áhugasamir hafi samband í síma 615-2121.
Skráning á námskeið sem hefst í mars er einnig hafin fyrir börn sem eru fædd eftir 10.október.
Kveðja Erla
|
|
|
| , föstudagur, 7. nóvember 2008 |
|
Nýtt námskeið hófst í síðustu viku, enn eru örfá laus pláss ef einhver hefur áhuga á að vera með. Skráning á námskeið sem hefst 10.janúar, bæði byrjenda- og framhaldsnámskeið er í fullum gangi og má sjá hvaða tímasetningar eru í boði undir næstu námskeið hér til vinstri.
Kveðja Erla
|
|
|
| , sunnudagur 26. október 2008 |
|
Ég hef ákveðið að bæta við einum byrjendahóp á þriðjudögum kl.16:30 á námskeiðið sem hefst á þriðjudadaginn (28.október). Enn eru laus pláss, endilega hafið samband sem fyrst ef þið hafið áhuga á að skrá barnið ykkar.
Kveðja Erla s:615-2121
|
|
|
| föstudagur, 10. október 2008 |
|
Nú eru myndirnar af litlu köfurunum komnar í myndasafnið hér til vinstri. Ef þið viljið fá myndirnar af ykkar barni stærri eða í betri gæðum, sendið mér þá tölvupóst og ég skal senda ykkur myndirnar.
Kveðja Erla
|
|
|
| laugardagur, 4. október 2008 |
|
Nú er fullt í alla byrjendahópa á næsta námskeiði en hægt er að skrá sig á biðlista ef einhver skyldi detta út eða hætta við.
Kveðja Erla
|
|
|
| laugardagur, 27. septmeber 2008 |
|
Nýi hópurinn var svo vinsæll að hann er orðinn fullur en í staðinn losnuðu pláss á laugardögum kl.11:20 og þriðjudögum kl.17:20. Áhugasamir hafi samband sem fyrst.
Einnig eru ennþá nokkur laus pláss í báðum í framhaldshópunum fyrir börn 8 mánaða og eldri.
Mig langar einnig að nefna að næsta laugardag (4.október) og þriðjudaginn (7.október) verður myndataka. Þá geta þeir sem hafa áhuga fengið myndir af börnum sínum í kafi. Myndirnar verða settar inn í myndasafnið hér á síðunni þar sem foreldrar geta nálgast þær.
Kveðja Erla
|
|
|
| föstudagur, 19. septemebr 2008 |
|
Nú hafa orðið nokkrar breytingar á næsta námskeiði.
Í fyrsta lagi hef ég ákveðið að bæta við einum byrjendahóp á laugardögum kl.9 en það átti upprunalega að vera framhaldshópur. Hægt er að skrá sig í síma 615-2121 eða 586-8608.
Í öðru lagi þarf ég að seinka námskeiðinu um viku þar sem að ég er að fara á sundráðstefnu á Selfossi helgina 24.-26.október.
Námskeiðið hefst því þriðjudaginn 28. október og laugardaginn 1.nóvember.
Kveðja Erla
|
|
|
| miðvikudagur, 10. septemebr 2008 |
|
Nú eru komnar nákvæmar tímasetningar á næsta námskeið en það hefst þriðjudaginn 21.október og laugardaginn 25.október.
Enn eru nokkur laus pláss fyrir byrjendur í hóp 1 á þriðjudögum kl.17:20. Einnig eru enn laus pláss í öllum þremur framhaldshópunum. Ég hvet áhugasama að hafa samband sem fyrst því að er fljótt að fyllast.
Fyrir þá sem eiga börn sem ekki verða orðin 3 mánaða í október bendi ég á að skráning á námskeið sem hefst í byrjun janúar er einnig hafin.
Hægt er að skrá sig í síma 615-2121/ 586-8608 eða með tölvupósti á netfangið ungbarnasunderlu@simnet.is
|
|
|
| fimmtudagur, 28. ágúst 2008 |
|
Þar sem að ég er að fara til Stokkhólms á Norræna ráðstefnu um ungbarnasund um helgina fellur kennsla niður á laugardaginn.
Laugin verður að sjálfsögðu heit og góð og opin öllum. Ég hvet ykkur til að skella ykkur í sund. Vona að þið eigið góða helgi.
Kveðja Erla
|
|
|
| fimmtudagur, 21. ágúst 2008 |
|
Skráning á vetrarnámskeið sem hefst upp úr miðjum október er hafin. Tímasetningar á hópum má sjá undir Næstu námskeið. Skráning í síma 615-2121 eða í gegnum tölvupóst á netfangið ungbarnasunderlu@simnet.is.
Kveðja Erla
|
|
|
| miðvikudagur, 13. ágúst 2008 |
|
Nýtt námskeið hefst á laugardaginn og ég bendi áhugasömum á það eru enn nokkur laus pláss fyrir byrjendur, kl.9 á laugardagsmorgnum og fyrir lengra komna á þriðjudögum kl.16:30. Skráning í síma 615-2121.
Kveðja Erla
|
|
|
| þriðjudagur, 22. júlí 2008 |
|
Vegna mikillar eftirspurnar á haustnámskeiðið hef ég hef bætt við einum byrjendahópi á laugardögum kl.9. Enn eru nokkur laus pláss, til að skrá ykkur er best að hringja í 615-2121 eða 586-8608.
Kveðja Erla
|
|
|
| fimmtudagur, 10. júlí 2008 |
|
Nú er Ungbarnasund Erlu komið í sumarfrí til 16.ágúst en þá hefjast ný byrjenda- og framhaldsnámskeið. Enn eru nokkur laus pláss fyrir byrjendur 3 mánaða og eldri. (Sjá Næstu námskeið hér til vinstri). Einnig er laust í alla framhaldshópana fyrir börn 8 mánaða og eldri. Skráning á vetrarnámskeið sem hefst í október er einnig hafin.
Einnig vil ég minna á að Suðurbæjarlaug er upphituð um helgar og opin almenningi í allt sumar. Ég vona að þið eigið yndilsegt sumar. Kveðja Erla
|
|
|
| mánudag, 16. júní 2008 |
|
Ég minni á að á morgun er frí í sundinu. Gleðilega þjóðhátíð og sjáumst hress á laugardaginn. Kveðja Erla
|
|
|
| þriðjudagur, 10. júní 2008 |
|
Sumarnámskeiðið er hafið og er fullt í alla hópa. Næsta námskeið hefst 16.ágúst, skráning er í fullum gangi og enn er nóg af lausum plássum. Nánari tímasetningar hér! Kveðja Erla
|
|
|
| miðvikudagur, 4. júní 2008 |
|
Myndirnar eru komnar inn frá tímunum á laugardag (31.maí) og þriðjudag (3.júní). Hægt er að nálgast þær undir Myndasafn. Kveðja Erla
|
|
|
| miðvikudagur, 28. maí 2008 |
|
Ég minni á að í síðasta tímanum á laugardag (31.maí) og þriðjudag (3.júní) verður myndataka af börnunum í kafi. Myndirnar verða síðan settar inn í myndasafnið hér til vinstri.
Einnig vil ég benda á að það eru örfá laus pláss eftir á sumarnámskeið sem hefst 10.júní. Kveðja Erla
|
|
|
| miðvikudagur, 14. maí 2008 |
|
Vegna mikillar eftirspurnar hef ég bætt við einum byrjendahóp á sumarnámskeiðinu. Hópur 3 er á þriðjudögum kl.16.15 og laugardögum 11:30. Enn eru nokkur laus pláss í þennan hóp, áhugasamir hafi samband við mig í síma 615-2121 eða 586-8608.
Kveðja Erla
|
|
|
| sunnudagur, 4. maí 2008 |
|
Nú eru aðeins örfá laus pláss á sumarnámskeiðinu sem hefst í júní. Skráning á 8 vikna haustnámskeiðið er einnig hafin. Skráning í síma 586-8608 eða 615-2121, einnig getið þið sent mér tölvupóst á netfangið ungbarnasunderlu@simnet.is
|
|
|
| miðvikudagur, 16. apríl 2008 |
|
Ég minni laugardagshópana á að það eru ekki tímar á laugardag 19.apríl heldur á sunnudaginn 20.apríl á sama tíma og þið eruð vanalega. Sjáumst hress á sunnudagsmorgun ;) Öllum er að sjálfsögðu velkomið að mæta í sund á laugardag en þá verður laugin heit og góð og opin öllum. Kv. Erla
|
|
|
| þriðjudagur, 15. apríl 2008 |
|
Ungbarnasundkennaranásmkeið 2008
Helgina 18-20. apríl n.k. mun Busli félag ungbarnasundkennara standa fyrir leiðbeinandanámskeiði í ungbarnasundi. Þetta er 20 stunda helgarnámskeið þar sem starfandi ungbarnasundkennarar, læknar og aðrir fróðir sjá um kennslu.
Verklegir tímar í sundlaug með ungbarnasundkennara koma í kjölfarið. Við lok þeirra tíma verður þátttakandi búinn að afla sér þekkingar til að standa sjálfur fyrir ungbarnasundkennslu.
Þátttökugjald: 49.000 þúsund krónur. Innifalið: Námskeiðið, kennsluefni (bók og glærur), 10 stunda verklegir tímar hjá reyndum leiðbeinanda, hádegismatur á laugardegi auk kaffi og meðlætis þrisvar sinnum.
Kennslustaður:Reykjalundur Mosfellsbæ
Tímasetning:
Föstudagurinn 18.apríl frá kl 12.30-19
Laugardagurinn 19. apríl frá 9-17.15
Sunnudagurinn 20. apríl frá 10-14.30
Til þess að geta skráð sig á námskeið þarf viðkomandi að vera íþróttafræðingur, íþróttakennari, sjúkraþjálfari, þroskaþjálfi eða hafa aðra sambærilega menntun. Áhugasömum og þeim sem vilja skrá sig er bent á að hafa samband við Erlu Guðmundsdóttur, ritara Busla í gegnum tölvupóst: ungbarnasunderlu@simnet.is.Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
|
|
|
| þriðjudagur, 8. apríl 2008 |
|
Nú er fyrsti tíminn á nýja námskeiðinu afstaðinn og allir spenntir að mæta aftur í næstu viku. Það hafa losnað tvö pláss í framhaldshópnum sem er á laugardagsmorgnum kl.9:30. Áhugasamir hafi samband sem fyrst.
Skráning á sumarnámskeið sem hefst 10.júní er í fullum gangi. Ef þú hefur áhuga á að skrá barn þitt á námskeið er best að hringja í mig í síma 615-2121 eða 586-8608. Kveðja Erla
|
|
|
| þriðjudagur, 18. mars 2008 |
|
Myndirnar eru komnar inn í myndasafnið hér til vinstri. Ef þið viljið fá myndirnar af ykkar barni í betri gæðum, sendið mér þá póst og ég skal senda ykkur þær í hvelli.
Páskakveðja Erla
|
|
|
| mánudagur, 17. mars 2008 |
|
Nú er vetrarnámskeiðinu lokið og komið páskafrí í ungbarnasundi Erlu. Endilega nýtið tækifærið og skellið ykkur í sund í hlýrri laug á laugardagsmorgnum. En næstu námskeið hefjast 5.apríl.
Ég vil þakka þeim sem voru að ljúka námskeiði fyrir skemmtilegar vikur og ég hlakka til að sjá ykkur, sem ætlið að halda áfram, aftur. Myndirnar verða settar inn í myndasafnið mjög fljótlega.
Einnig vil ég benda á að það eru aðeins örfá laus pláss á vornámskeiðið sem hefst 5. og 8.apríl. Það er laust á þriðjudögum kl.17:10. Skráning á sumarnámskeið sem hefst 10.júní er einnig hafin.
Hafið það gott um páskana.
Kveðja Erla
|
|
|
| miðvikudagur, 5. mars 2008 |
|
Sæl öll sömul, ég er komin með nýtt farsímanúmer en það er 615-2121. Kveðja Erla
|
|
|
| þriðjudagur, 26. febrúar 2008 |
|
Vegna þess að loka þurfti lauginni þann 2.febrúar verður aukatími sunnudaginn 2.mars á sama tíma og þið eruð venjulega á laugardögum, þ.e. byrjendur kl.11:10 og framaldshópar kl.10:20 og 9:30. Þeir sem eru í þriðjudagshópum og hafa misst úr tíma eru endilega velkomnir líka.
Varðandi skráningu á námskeið sem hefst í apríl þá eru enn nokkur laus pláss á þriðjudögum bæði kl.17:10 og kl.18:00. Einnig er skráning hafin á sumarnámskeið sem hefst í júní.
|
|
|
| föstudagur, 8. febrúar 2008 |
|
Nú eru komnar nákvæmar tímasetningar á hópa á næsta námskeið sem hefst í apríl. Enn eru laus pláss í öllum byrjendahópunum, ef þú hefur áhuga á að skrá barnið þitt er best að hafa samband við mig í síma 586-8608 eða 663-2217.
|
|
|
| föstudagur, 1. febrúar 2008 |
|
Eins og þið hafið eflaust heyrt í fréttum hefur þurft að loka nokkrum sundlaugum á landinu vegna skorts á heitu vatni og er Suðurbæjarlaug ein af þeim laugum. Hún verður því miður lokuð á morgun laugardag og því falla sundtímarnir niður. Við bætum þennan tíma upp seinna á námskeiðinu. :) Kv. Erla
|
|
|
| föstudagur, 1. febrúar 2008 |
|
Sæl aftur öll sömul, nú eru námskeiðin komin á fullt skrið og það er alveg æðislegt að vera byrjuð aftur eftir fríið! Ég hef notað tímann til að bæta heimasíðuna og nú er kominn inn æfingabanki fyrir þá sem vilja fara í sund og rifja upp æfingar eftir að námskeiðinu lýkur. Einnig geta núverandi og fyrrverandi nemendur mínir komið á framfæri skoðunum sínum eða sent mér skilaboð með því að smella á Umsagnir hér til vinstri. Endilega nýtið ykkur þetta því að mér þætti gaman að heyra frá ykkur.
Enn og aftur minni ég á að ef þið hafið áhuga á að skrá ykkur á næsta námskeið sem verður í apríl þá getið þið hringt í mig í síma 663-2217 eða 586-8608. Kveðja Erla
|
|
|
| föstudagur, 11. janúar 2008 |
|
Sæll öll sömul og gleðilegt ár! Laugardaginn 19. og þriðjudaginn 22.janúar hefjast ný 9 vikna byrjenda- og framhaldsnámskeið. Byrjendur hittast í andyri Suðurbæjarlaugar í fyrsta tíma en nemendur og foreldrar á framhaldsnámskeiðum mæta beint ofan í laug.
Skráning á næsta námskeið sem hefst í apríl er í fullum gangi og ef þið hafið áhuga á að skrá ykkur er best að hringja í mig í síma 663-2217 eða 586-8608. Kv. Erla
|
|
|
| föstudagur, 16. nóvember 2007 |
|
Nú er orðið fullt í báða byrjendahópana en ég á örfá laus pláss í framhaldshópinn sem er á laugardögum kl.09:30. Næsta námskeið hefst svo 1.apríl og þið getið haft samband við mig ef þið hafið áhgua á að skrá ykkur á það.
|
|
|
| þriðjudagur, 6. nóvember 2007 |
|
Skráning á námskeið sem hefjast í janúar gengur mjög vel. Námskeiðin munu hefjast 19.og 22.janúar og standa yfir í 9 vikur. Það er þegar orðið fullt í tvo framhaldshópa en það eru nokkur laus pláss á laugardagsmorgnum kl.9:30. Það eru líka laus pláss í báða byrjendahópana, á þriðjudögum kl.18 og á laugardögum kl.11:10, en hafið endilega samband sem fyrst ef þið hafið áhuga á að skrá ykkur því að það er fljótt að fyllast.
Ég lofaði líka nokkrum góðum mæðrum að láta vita þegar ég yrði léttari. Þann 23.október eða fyrir einmitt 2 vikum eignaðist ég litla yndislega stúlku og okkur heilsast öllum mjög vel. Kveðja Erla.
|
|
|
| þriðjudagur, 16. október 2007 |
|
Sæl aftur öll sömul. Mig langar að nota tækifærið og kveðja þá sem ekki komumst í síðasta tímann. Takk fyrir mig, þetta voru alveg frabærir hópar! Ég "útskrifaði" hvorki meira né minna en 40 börn og ég á eftir að sakna ykkar mikið! Einnig er ég rosalega ánægð með það að allir byrjendurnir ætla á framhaldsnámskeið í janúar. Hlakka til að sjá ykkur aftur.
Suðurbæjarlaug ætlar að halda áfram að kynda laugina svona vel fyrir ykkur um helgar þannig að það er um að gera að halda áfram að mæta þó að ég sé farin í frí. Það verður engin kennsla í lauginni um helgar og laugin er ávallt hituð til hádegis og helst heit í góðan tíma eftir það. Endilega nýtið ykkur þetta og þeir sem eiga ennþá sundmiða geta notað þá. Vona að þið hafið það sem allra best. Kveðja Erla.
|
|
|
| laugardagur, 29. september 2007 |
|
Sæl öll sömul. Myndirnar sem teknar voru á þriðjudaginn og í dag eru komnar í myndasafnið hér til vinstri. Njótið vel! Kv. Erla
|
|
|
| mánudagur, 24. september 2007 |
|
Mig langar að minna á að það er myndataka í þessari viku, þ.e. á morgun þriðjudaginn 25.september og einnig á laugardaginn 29.september.
Af öllum byrjendum er tekin mynd í kafi en á framaldsnámskeiði geta þeir sem hafa áhuga fengið fjölskyldumynd. Myndirnar getið þið svo nálgast í myndasafninu hér á síðunni ykkur að kostnaðarlausu.
|
|
|
| laugardagur, 15. september 2007 |
|
Eins og glöggir iðkendur ungbarnasunds Erlu hafa eflaust tekið eftir hef ég fjárfest í 10 glænýjum skiptiborðum. Skiptiborðin fást í verslunum Babysam.
Ég vil einnig benda þeim sem hafa áhuga á að skrá sig í ungbarnasund á það að ég mun verða í fæðingarorlofi frá október til janúar. Upp úr miðjum janúar mun ég byrja með 9 vikna byrjenda- og framhaldsnámskeið. Ég mun auglýsa hér á síðunni ef annar kennari verður með námskeið í Suðurbæjarlaug á meðan ég er í fríi.
|
|
|
| mánudagur, 13. ágúst 2007 |
|
Vegna endurbóta verður Suðurbæjarlaug lokuð mánudag til föstudag í þessari viku. Tímarnir sem áttu að byrja á morgun þriðjudaginn 14.ágúst færast því til sunnudagsins 19.ágúst. Hópur 6 (framhald) verður kl. 9:15, hópur 7 (framhald) kl.10:00 og hópur 2 (byrjendur) kl.11:00.
Sjáumst eldhress í endurbættri laug á laugardag eða sunnudag! Kveðja Erla
|
|
|
| föstudagur, 13. júlí 2007 |
|
Jæja, í dag er síðasti tíminn á sumarnámskeiðinu og komið sumarfrí hjá Ungbarnasundi Erlu en næsta námskeið hefst þann 14./18.ágúst. Það er þegar orðið fullt í báða byrjendahópana en ennþá eru nokkur laus pláss í framaldshópana sem eru kl.9 á laugardögum og 16.30 á þriðjudögum.
Ég vil enn og aftur minna á að Suðurbæjarlaug, bæði inni- og útilaugin verða opnar almenningi allan daginn um helgar í sumar. Njótið þess nú enidlega að fara með börnin í sund í sumar. Kær kveðja Erla
|
|
|
| laugardagur, 23. júní 2007 |
|
Myndirnar sem teknar voru þriðjudaginn 12.júní eru komnar í myndasafnið hér til vinstri og myndirnar sem teknar voru í dag verða settar inn á næstu dögum. Ég vil um leið þakka öllum sem luku námskeiði í þessari viku fyrir skemmtilegar vikur, en þetta voru einstaklega spræk og dugleg börn. Ég vona að þið hafið það gott og verðið dugleg að fara í sund í sumar.
Suðurbæjarlaug verður opin fyrir almenning um helgar í sumar, en engin kennsla hefst á laugardögum fyrr en 18.ágúst. Það er því um að gera að fara með alla fjölskylduna í sund á frídögum í sumar. Gleðilegt sundsumar. Kv. Erla
|
|
|
| föstudagur, 8. júní 2007 |
|
Sæl öll sömul. Eins og sumir hafa eflaust tekið eftir hefur síðan verið flutt af ungbarnasunderlu.tk á ungbarnasunderlu.is og mun síðan taka smá breytingum á næstu dögum.
Ég vil nota tækifærið og benda á að það verður myndataka á vornámskeiðinu þriðjudaginn 12.júní og laugardaginn 23.júní. Myndirnar munu svo birtast í myndasafninu hér á síðunni.
Í næstu viku hefst svo sumarnámskeið í ungbarnasundi en þetta er aukanámskeið og verður í 5 vikur á þriðjudögum og föstudögum. Það eru ennþá nokkur laus pláss í framhaldshópinn ef einhver hefur áhuga á að koma á námskeið í sumar.Hlakka til að sjá ykkur. Kveðja Erla.
|
|
|
| þriðjudagur, 1. maí 2007 |
|
Í dag, á verkalýðsdaginn 1.maí, er Suðurbæjarlaug lokuð og því falla allir sundtímar niður í dag. Byrjendur gátu valið um að koma mánudag eða miðvikudag 16.10 þannig að þeir sem ekki komu í gær koma á morgun. Framhaldshópurinn getur valið um að koma kl.10:40 eða 11:20 á laugardag og vera með hinum framhaldshópunum. Njótið þið frísins og sjáumst hress á morgun eða laugardag. Kveðja Erla
|
|
|
| þriðjudagur, 24. apríl 2007 |
|
Nú er orðið fullt á byrjendanámskeiðið sem haldið verður í sumar en ég á enn nokkur laus pláss fyrir þá sem vilja koma á framhaldsnámskeið. Ég er þegar farin að taka við skráningum á námskeiðið sem hefst 14.ágúst en það námskeið verður 1x í viku í 9 vikur. Áhugasamir hafi samband við mig í síma eða tölvupósti.
|
|
|
| mánudagur, 16. apríl 2007 |
|
Í þessari viku hefjast ný námskeið, um er að ræða 4 byrjendahópa og 3 framhaldshópa. Í fyrsta tímanum, á morgun þriðjduag eða á laugardag, hittumst við í andyri Suðurbæjarlaugar og förum saman inn að laug og spjöllum aðeins saman áður en við förum ofan í. Framhaldshóparnir mæta beint ofan í laug því þið kunnið á þetta allt saman. Ég hlakka mikið til að hitta alla. Erla
|
|
|
| þriðjudagur, 3. apríl 2007 |
|
Sæl öll sömul. Mig langar að óska ykkur allra gleðilega páska. Eins og ég sagði í síðasta tíma er frí í ungbarnasundinu í þessari viku (3.og 7.apríl) en það er um að gera að skella sér í sund þrátt fyrir það. Þetta er sérlega góður tími fyrir alla fjölskylduna að fara saman í sund. Hafið það nú sem allra best í fríinu og sjáumst hress í síðasta tíma námskeiðsins í næstu viku. Kveðja Erla
|
|
|
| sunnudagur, 25. mars 2007 |
|
Nú er orðið fullt í alla byrjendahópa á námskeiðinu sem hefst upp úr miðjum apríl og því miður komust færri að en vildu. Það er enn hægt að skrá sig á biðlista eða kíkja á www.ungbarnasund.is hvort það sé laust hjá öðrum ungbarnasundkennurum. Ég ætla að reyna að vera með námskeið í sumar en hef ekki enn fengið staðfest hvort að laugin sé laus. Næsta námskeið hefst svo í haust eða þann 14.ágúst.
Ég hef reynt að hafa samband við alla sem óskuðu eftir að koma á framhaldsnámskeið núna í apríl, þ.e. þeir sem voru á byrjendanámskeiði nóv-jan. Ef þú villt koma með barnið þitt á framhaldsnámskeið og þú hefur ekki heyrt í mér þá er ekkert mál að skrá sig hér á síðunni í gegnum tölvupóst eða hringja.
|
|
|
| föstudagur, 23. mars 2007 |
|
Eins og flestir hafa eflaust tekið eftir þá eru nýju myndirnar komnar í myndasafnið hér til vinstri. Ef þið viljið myndirnar stærri/ í betri gæðum sendið mér þá tölvupóst og ég skal senda ykkur þær.
Einnig langar mig að benda á að aðeins eru 5 laus pláss á næsta byrjendanámskeið sem hefst í apríl. Áhugasamir geta hringt í mig í síma 663-2217 eða 586-8608.
|
|
|
| þriðjudagur, 6. mars 2007 |
|
Sæl öll sömul. Í næstu viku eða í 7. tíma verður myndataka í öllum hópum. Teknar verða einstaklingsmyndir af byrjendum í kafi og í framhaldshópunum verða teknar "fjölskyldumyndir" í kafi.
Skráning á næsta námskeið sem hefst 17.og 21.apríl gengur mjög vel og eru fá pláss eftir í sumum hópum. Ef þið hafið áhuga á að skrá ykkur á námskeið þá getið þið haft samband í gegnum síma eða tölvupóst. Þeir sem eru að koma á framhaldsnámskeið í apríl þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur, ég hef samband við ykkur í lok þessa mánaðar. Kv. Erla
|
|
|
| sunnudagur, 4. febrúar 2007 |
|
Nú er nýtt námskeið hafið, fyrsti tíminn búinn og allir rosa kátir. Ég hef fengið margar spurningar um hvort að ömmur, afar eða aðrir megi koma að horfa á sundtíma og það er alveg sjálfsagt.Ef þið hafið fleiri spurningar er ykkur velkomið að hringja í mig eða senda mér tölvupóst. Sjá allar upplýsingar í "Hafa samband" í dálkinum hér til vinstri.
Að gefnu tilefni vil ég benda á að næsta námskeið hefst 17.og 21.apríl og að skráning er þegar hafin.
|
|
|
| mánudagur, 22. janúar 2007 |
|
Hæ öll sömul nú eru myndirnar komnar í myndasafnið hér til vinstri. Njótið vel! Kv. Erla
|
|
|
| sunnudagur, 14. janúar 2007 |
|
Á þriðjudag (16.jan) og laugardag (20.jan) verður myndataka hjá öllum hópum. Þá verða teknar myndir af börnunum í kafi sem þið getið nálgast hér í myndasafninu. Ég er nú þegar búin að setja inn myndir sem ég tók af börnunum í byrjun námskeiðsins.
|
|
|
| laugardagur, 13. janúar 2007 |
|
Nú er orðið fullt í alla byrjendahópa á námskeiðinu sem hefst um næstu mánaðarmót og því miður komust færri að en vildu. Það er enn hægt að skrá sig á biðlista. Ég hef haft samband við alla sem óskuðu eftir að koma á framhaldsnámskeið, þ.e. þeir sem voru á byrjendanámskeiði í haust. Ef þú villt koma með barnið þitt á framhaldsnámskeið og ég hef ekki hringt þá er ekkert mál að skrá síg hér á síðunni í gegnum tölvupóst eða hringja. Hópa í boði má sjá undir næstu námskeið hér til vinstri.
|
|
|
| miðvikudagur, 3. janúar 2007 |
|
Sæl verið þið og gleðilegt ár. Vegna veikinda munu Helga og Jón kenna fyrir mig þessa vikuna en ég mæti hress í næstu viku.
Ég vil einnig benda á það að myndirnar sem ég tók í byrjun námskeiðs eru komnar inn í myndasafnið hér til vinstri. Vona að þið hafið öll haft það sem best yfir hátíðirnar. Hlakka til að sjá ykkur sem eruð á námskeiði hjá mér í næstu viku.
Ef þið hafið áhuga á að skrá ykkur á næsta námskeið sem hefst í lok mánðarins þá eru enn nokkur laus pláss í hópnum kl.16.30 á þriðjudögum. Kveðja Erla.
|
|
|
| miðvikudagur, 20. desember 2006 |
|
Nú er komið jólafrí í ungbarnasundinu, næstu tímar eru þriðjudaginn 2.janúar og laugardaginn 6.janúar. Ég vona að þið hafið það sem allra best yfir hátíðirnar og njótið þess að slaka á í faðmi fjölskyldunnar. Ég hlakka til að sjá ykkur hress og kát á nýju ári. Ég vil nota tækifærið og minna á að Suðurbæjarlaug er að sjálfsögðu opin þó að ég verði ekki á svæðinu og um að gera að nýta jólafríið í að fara í fjölskyldusundferð. Laugin er sérstaklega hituð upp fyrir hádegi bæði á laugardögum og sunnudögum. Jólakveðjur frá Erlu.
|
|
|
| mánudagur, 20. nóvember 2006 |
|
Sæl öll sömul. Nú eru fyrstu tveir tímarnir á námskeiðinu búnir og börnunum líkar vel í vatninu. Skráning á seinna vetrarnámskeiðið, sem hefst um mánðarmótin janúar-febrúar, gengur vel og þegar er orðið fullt í einn hóp. Endilega hafið samband sem fyrst ef þið hafið áhuga á að skrá ykkur á námskeið þá til þess að fá alveg örugglega pláss.
|
|
|
| föstudagur, 10. nóvember 2006 |
|
Nú eru myndirnar sem teknar voru á haustnámskeiðinu, og allir hafa beðið spenntir eftir, loksins komnar í myndasafnið hér til vinsrti. Ef þið viljið fá einhverja af myndunum í fullum gæðum sendið mér þá endilega tölvupóst og ég skal senda ykkur þær.
|
|
|
| laugardagur, 28. október 2006 |
|
Hæ öll sömul. Ég vil minna á að það verður myndataka á þriðjudag og laugardag enda eru þetta síðustu tímarnir á þessu námskeiði.Teknar verða myndir í kafi og líka af hópunum í ýmsum skemmtilegum æfingum. Myndirnar verða svo allar settar hér inn í myndasafnið þar sem að foreldrar geta nálgæst þær sér að kostnaðarlausu.
Nú er orðið fullt í alla hópa og því rúmlega 70 börn sem byrja á byrjenda og framhaldsnámskeiðum núna í byrjun nóvember. Ég mun hafa samband við alla til að minna á í tölvupósti eða síma.
|
|
|
| mánudagur, 16. október 2006 |
|
Mér tókst að bæta við enn einum hóp fyrir byrjendur en hann er kl.18.10 á þriðjudögum. Nú eru því framhaldshóparnir báðir á laugardögum, sjá næstu námskeið hér til vinstri. Eftir að hafa komið fyrir öllum sem voru á biðlista eru nokkur laus pláss. Hafið samband sem fyrst ef þið hafið áhuga. Kveðja Erla
|
|
|
| sunnudagur, 15. október 2006 |
|
Í gær leystu Jón og Helga mig af því að ég var á Norrænni ráðstefnu um ungbarnasund, sem haldin var hér á landi um helgina. Ég er því full fróðleiks núna (enn meira en áður...hehehe) og með margar nýjar og skemmtilegar hugmyndir. Jón og Helga kenndu alla sundtímana og fannst þeim sérstaklega gaman að hitta gamla nemendur sína sem eru nú í framhaldshópnum. Ég vil nota tækifærið hér og þakka þeim Jóni og Helgu kærlega fyrir að hlaupa í skarðið fyrir mig. Ég veit að nemendur og foreldrar voru mjög ánægð með þessa tilbreytingu enda um frábæra reynslubolta að ræða sem kenndu ungbarnasund í meira en 15 ár.
|
|
|
| miðvikudagur, 4. október 2006 |
|
Nú er orðið fullt í byrjendahópana og því miður komast færri að en vilja og nú þegar hefu myndast biðlisti. Ég bendi áhugasömum á að hægt er að skrá sig á námskeið sem hefst í lok janúar eða kíkja á www.ungbarnasund.is en þar eru upplýsingar um flest alla sem kenna ungbarnasund í höfuðborginni. Skráning á framhaldsnámskeið er hafin og í þeim hópum eru 9.-16.mánaða börn sem áður hafa lokið byrjendanámskeiði hjá mér eða öðrum ungbarnasundkennara.
|
|
|
| fimmtudagur, 21. september 2006 |
|
Vegna mikillar eftirspurnar hef ég ákveðið að bæta við einum hópi á þriðjudögum kl.16.30 en fullt er í hina hópana.
|
|
|
| mánuudagur, 18. september 2006 |
|
Skráning á vetrarnámskeiðið sem hefst í byrjun nóvember gengur vel og aðeins eru örfá laus pláss eftir í byrjendahópa. Sjá nánar,næstu námskeið, hér til vinstri.
|
|
|
| fimmtudagur, 31. ágúst 2006 |
|
Nú eru haustnámskeiðin byrjuð og allir hópar búnir með sinn fyrsta tíma.Fyrsti tíminn var aðallega kynning á námskeiðinu, kennararnum og aðbúnaðinum. Að því loknu var farið ofan í laugina og líkaði öllum börnunum vel. Sérstaklega þau sem voru að koma á framhaldsnámskeið, en þau voru í fullu fjöri og höfðu greinilega saknað laugarinnar og félagsskaparins.
|
|
|
| miðvikudagur, 23. ágúst 2006 |
|
Nú er orðið fullt í alla byrjendahópa en enn eru nokkur laus pláss í framhaldshópunum. Skráning er þegar hafin á næsta námskeið sem hefst í byrjun nóvember. Endilega hafið samband ef þið hafið áhuga. Kveðja Erla
|
|
|
| laugardag, 12. ágúst 2006 |
|
Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig á námskeiðin sem hefjast 26.og 29.ágúst. Ennþá nokkur laus pláss á bæði byrjenda og framhaldsnámskeið.
Áhugasamir hafi samband við Erlu í síma 586-8608 eða 663-2217.
|
|
|
| sunnudag, 6. ágúst 2006 |
|
Nú eru komnar myndir í myndasafnið hér til vinstri. Ég set myndirnar inn fljótlega eftir að þær eru teknar og á næstu vikum munu bætast við fleiri myndir. Fylgist með!
|
|
|
| föstudag, 28 júlí 2006 |
|
Jón og Helga sem kennt hafa ungbarnasund í Suðurbæjarlaug í Hafnarfirði síðustu 15 árin hafa ákveðið að leggja árar í bát og ég, Erla Guðmundsdóttir, íþróttafræðingur og ungbarnasundkennari hef tekið við.
|
|