Velkomin á ungbarnasunderlu.is
Nýtt ár og nýr hópur
Sunnudagur, 8.janúar 2012

Gleðilegt nýtt ár!
Í gær hófst nýtt námskeið og það var alveg frábært að sjá alla litlu sundgarpana mína, bæði gamla og nýja. Fyrsti tíminn hjá þriðjudagshópunum er svo næstkomandi þriðjudag 10.janúar. Verður gaman að sjá ykkur líka.
Það er orðið fullt í alla byrjendahópana og framhald 1 en mögulegt að skrá sig á biðlista. Það eru örfá laus pláss í framhald 2 kl.17:45 og nokkur laus pláss í nýja Fjörkálfahópnum kl.16:10.

Næstu námskeið hefjast í mars og skráning er hafin. Sjá nánar undir næstu námskeið. Skráning fer fram í síma 615-2121 eða í tölvupósti
erla@ungbarnasunderlu.is

Kveðja Erla


Jólafrí
Miðvikudagur, 14.desember 2011

Komið þið sæl
Nú er síðasta námskeiði ársins lokið og vil ég nota tækifærið til að þakka öllum fyrir frábærar sundstundir á árinu sem er að líða. Sjáumst hress og kát á nýju ári.

Mig langar einnig að benda þeim sem voru að ljúka námskeiði í vikunni og öðrum áhugasömum á að myndirnar eru komnar inn á Facebook.

Næstu námskeið hefjast 7.og 10.janúar og enn eru nokkur laus pláss bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Sjá nánar undir næstu námskeið. Skráning fer fram í síma 615-2121 eða í tölvupósti
erla@ungbarnasunderlu.is

Jólakveðja Erla


Heimasíðan loksins komin í lag!
Mánudagur, 21.nóvember 2011

Hæ hæ allir, Loksins er heimasíðan komin aftur í lag og búið að uppfæra hópa og námskeið :) Nánari upplýsingar má finna undir Næstu námskeið.
Skráning í síma 615-2121 eða í tölvupósti
erla@ungbarnasunderlu.is


Næsta námskeið- nokkur laus pláss
Laugardagur, 1.október 2011

Sæl verið þið, Næsta námskeið hefst þriðjudaginn 18.og laugardaginn 22.október. Skráning gengur vel og er orðið fullt í marga hópanna en það eru nokkur laus pláss á þriðjudögum kl.19:15 fyrir byrjendur. Það er einnig hægt að skrá sig á biðlista í laugardagshópana ef einhver skyldi forfallast.
Sjá nánar hvenær er laust undir næstu námskeið hér til hægri.
Skráning í síma 615-2121 eða í tölvupósti
erla@ungbarnasunderlu.is







Hvers vegna ungbarnasund?
  • Ungbarnasund er fyrst og fremst hreyfing í vatni fyrir börn á aldrinum 3 mánaða til 2 ára. Hreyfing er margfalt auðveldari í vatni en á landi og aukin hreyfing flýtir fyrir hreyfiþroska. Fyrstu mánuðir af æviskeiði barna eru mikilvægastir hvað þroskaferil varðar.
  • Erlendar rannsóknir hafa sýnt að ungbarnasund einu sinni til tvisvar í viku stuðlar að betri svefni, matarlyst og betra skapi á meðan á námskeiðinu stendur.
  • Barnið verður öruggt í vatni og lærir að bera virðingu fyrir því en það en getur fyrirbyggt vatnshræðslu og drukknanir.



  • Námskeið í gangi
    Vetrarnámskeið 2
    hefst 7. og 10.janúar 2012.
    Námskeiðið er 8 skipti og kennt er einu í viku, á þriðjudögum eða laugardögum.

    Námskeið sem eru í boði eru:
    Byrjendur (3-6 mánaða)
    Framhald I (5-8 mánaða börn sem lokið hafa byrjendanámskeiði)
    Framhald II (8-15 mánaða börn sem lokið hafa byrjendanámskeiði)
    Fjörkálfar (2 ára)


    ByrjendurTímasetning
    Hópur 1Þriðjudagar kl.18:30Fullt
    Hópur 2Þriðjudagar kl.19:15Fullt
    Hópur 3Laugardagar kl.11:30Fullt
    Hópur 4Laugardagar kl.12:20Fullt


    Framhald ITímasetning
    Hópur 5Þriðjudagar kl.17:00Fullt
    Hópur 6Laugardagar kl.10:40Fullt


    Framhald IITímasetning
    Hópur 7Þriðjudagar kl.17:45Laust
    Hópur 8Laugardagar kl.9:50Fullt

    FjörkálfarTímasetning
    Hópur 9Laugardagar kl.9:00Fullt
    Hópur 10Þriðjudagar kl.16:10Laust-NÝR HÓPUR





    Svipmyndir úr ungbarnasundi