|
Hvað þarf barnið mitt að vera gamalt til að byrja í ungbarnasundi?
Til þess að byrja í ungbarnasundi segja sérfræðingar að barnið þurfi að hafa náð 4 kg, vera orðið 8 vikna og að naflinn sé gróinn. Mörgum foreldrum finnst samt betra að byrja þegar barnið er 3-5 mánaða gamalt. Þá eiga börnin auðveldara með að venjast breytingum sem geta orðið á svefni og matarvenjum þegar mæta þarf á ákveðnum tíma. Eldri börn hafa líka meira úthald í vatninu og geta klárað allan sundtímann án þess að vera þreytt og pirruð. Foreldrar fá meiri viðbrögð frá barninu í gegnum leik og ,,skvett” og börnin eru meðvitaðri um umhverfið sitt. Til þess að venjast vatninu er gott að byrja snemma en það er aldrei of seint að byrja í ungbarnasundi. Betra er seint en aldrei!
Á Íslandi vilja flestir ungbarnasundkennarar að börnin séu orðin 3 mánaða.
Barnið þarf að vera vel sofið og mett þegar sundtíminn byrjar og því þarf að skipuleggja sig vel. Þegar þið teljið ykkur vera tilbúin til þess að gera þetta allt er engin fyrirstaða að byrja.
Afhverju geta ungbörn kafað?
Börn fæðast með viðbrögð sem eru þeim ósjálfráð fyrstu mánuðina og jafnvel árin. Eitt hinna meðfæddu viðbragða er svo nefnt köfunarviðbragð. Þetta viðbragð sem er varnarviðbragð, lýsir sér meðal annars með því að þegar vatn kemur í snertingu við andlit og/eða öndunarfæri barns lokast þau (öndunarfærin). Köfun er því undirstöðuæfing á námskeiðinu. Við endurteknar köfunaræfingar þar sem börn halda niðri í sér andanum, verða ósjálfráð viðbrögð sjálfráð, þannig að eftir nokkurn tíma fara börnin að halda niðri í sér andanum um leið og þau sjá eða merkja það að köfun er að hefjast.
Verða börnin að fara í kaf?
Þú átt aldrei að gera neitt sem þér líður ekki vel með. En barnið þarf fyrr eða seinna að fara í kaf því að hluti ungbarnasunds er að kenna börnunum að halda niðri í sér andanum í kafi sem er mikið öryggisatriðið þegar þau verða eldri.
Ef þú ert smeik/smeikur við að setja barnið þitt í kaf þá er allt í lagi að bíða með það þarngað til þú ert örugg/öruggur og fá aðstoð kennar til að byrja með. Þegar þið sjáið að barnið heldur niðri í sér andanum í vatni hætti þið að hafa áhyggjur af því og þið finnið öll fyrir meira öryggi í vatni.
Eru öll börn hrifin af vatni?
Öll börn eru hrifin af vatni þegar þau fæðast, en geta orðið smeik ef upp hefur komið e-ð atvik t.d heima í baði sem olli því að barninu varð brugðið eða hrætt. Það er þó yfirleitt ekkert mál að losna við þessa hræðslu með því að fara rólega af stað (í sundi eða baði) og sýna barninu hversu notalegt það er að vera í vatni.
Verð ég að fara á námskeið til að fara með barnið í sund?
Að fara reglulega í sund með barninu sínu er gott og það getur maður auðvitað gert sjálfur. Það er þó erfitt að vita hvað á að gera með barninu og hvenær barnið er tilbúið fyrir hverja æfingu. Einnig er gott að hafa kennara með til þess að barnið læri að njóta vatnsins og sundtímana frá byrjun. Foreldrar eru stundum áhyggjufullir og börnin finna það um leið og verða þá ef til vill óörugg. Þegar kennari er á staðnum sér hann til þess að foreldrar sýni aldrei neikvæð viðbrögð heldur hrósi barninu stöðugt og hvetji það áfram.
Get ég gefið barninu að drekka í sundlauginni?
Að sjálfsögðu getið þið gefið barninu pela eða brjóst ofan í lauginni. Ef barnið er pirrað og þið vitið að það er svangt má fara afsíðis og koma sér þægilega fyrir upp að bakkann og gefa barninu að drekka. Hafið barnið þá vel ofan í vatninu en höfuðið fyrir ofan yfirborðið svo að því verði ekki kalt.
Hvenær er barn orðið of gamalt til að fara í ungbarnasund?
Aldrei! Eldri börn geta þurft aðeins lengri tíma til að aðlagast og venjast vatninu. Einnig getur tekið aðeins lengri tíma að læra að halda niðri í sér andanum í kafi.
|